Resumen del episodio
Bibba mætti í Bose stúdíóið og gerði upp hlaupasumarið með okkur. Einnig var Suður Kóresk skýrsla á boðstólum beint úr höfuðstaðnum. Mælum með að hlusta!
Bibba mætti í Bose stúdíóið og gerði upp hlaupasumarið með okkur. Einnig var Suður Kóresk skýrsla á boðstólum beint úr höfuðstaðnum. Mælum með að hlusta!
Episodios
#140 Sumarið gert upp!
EscuchadoBibba mætti í Bose stúdíóið og gerði upp hlaupasumarið með okkur. Einnig var Suður Kóresk skýrsla á boðstólum beint úr höfuðstaðnum. Mælum með að hlusta!
#139 Gamli góði þátturinn!
EscuchadoKöben half gert upp frá okkar manni, Tobbi með Slóvenska skýrslu og bakgarðurinn búinn að eignast nýjan bad boy!
#138 Nýtt Supermantrend!
EscuchadoUppgjörið á íslandi, Kaupmannahafnarmaraþonið, bakgarðsupphitun og spurt og svarað frá hlustendum!
#137 Einvígið á Vatnsendanum!
EscuchadoDorrit á Esjunni, Þórsmerkurþrennan og vaskir Eyjaskokksmenn sem gerðu sér ferð í dalinn. Þetta ásamt upphitun fyrir Vatnsenda einvígið og margt fleira á boðstólum í dag!
#136 Hefur þú farið á Esjuna?
EscuchadoEldheitar Esju umræður, UTMB gert upp ásamt glóðvolgum hugleiðingum varðandi zone tvö.
#135 Hlaupasumarið búið?
EscuchadoFórum yfir Reykjavíkurmaraþonið, ræddum við ísmanninn um nýtt íslandsmet og hvernig bicarb hefur áhrif á hann ásamt góðri skýrslu frá hlaupadagskrá.is.
#134 Reykjavíkurmaraþon pepp!
EscuchadoFórum yfir síðustu hlaup hér heima, ræddum árangur íslendinga á EM og hituðum ykkur vel upp fyrir Reykjavíkurmaraþonið!
#133 Endurkoman
EscuchadoMættir aftur í Bose stúdíóið eftir stutt og gott sumarfrí. Fórum yfir síðustu hlaup hér heima, ræddum endurkomu Kingebrigtsen á brautina og framhaldið í hlaupum um allan heim!
#132 Súldin styrkir!
EscuchadoVið fengum skýrslu frá Gunna Palla varðandi MÍ um helgina, ræddum 905 stigin hans Tobba, gerðum upp síðustu hlaup og fórum yfir þau sem framundan eru. Stravaliðurinn kom svo sterkur inn með allskonar skemmtilegum segmentum!
#131 Daniel Pattis, Ítalski öðlingurinn!
EscuchadoVið fengum einn besta hlaupara heims um þessar mundir til þess að munda míkrafóninn í Bose stúdíóinu. Hann fór yfir það hvernig hann æfir, jafnvægi milli atvinnumannalífs og félagslífs, keppniskvíða og hvernig hann tekst á við stærstu keppnir í heimi!
#130 Laugavegs uppgjör!
EscuchadoÍ þessum þætti snýst allt um Laugavegshlaupið sem var gert upp í allri sinni mynd. Við fórum einnig yfir íslandsmótið í 10 km hlaupi sem haldið var í Ármannshlaupinu um daginn.
#129 Laugavegs upphitun!
EscuchadoAllt sem þú þarft að vita um Laugaveginn!
#128 Elísa elskar Ítalíu!
EscuchadoElísa Kristins, hlaupadrottningin sjálf kíkti til okkar í Bose stúdíóið og ræddi við okkur um frækinn sigur í Lavaredo, kom með predictions fyrir Laugarveginn og gerði upp síðustu hlaup á landinu!
#127 Ísmaðurinn - alltaf í formi!
EscuchadoFengum Davíð Frey Magnússon í Bose stúdíóið sem gestastjórnanda. Fórum yfir hans stutta en magnaða hlaupaferil til þessa ásamt því að ræða það sem hefur verið á döfinni í íslensku hlaupasamfélagi!
#126 EM uppgjör!
EscuchadoVið vinirnir hittumst í Bose stúdíóinu og gerðum upp EM í Slóveníu ásamt síðustu hlaupum innanlands!
#125 Þú fokkar ekki í landsliðinu!
EscuchadoAndrea Kolbeins mætti í Bose stúdíóið í dag og gerði upp Golden trail ferðina á Ítalíu. Við tókum hlaupauppgjör síðustu hlaupa á íslandi og svöruðum spurningum úr sal!
#124 Tove Tvennan!
EscuchadoTove Alexanderson mætir í Laugarveginn, stærstu fréttir ársins! Gerðum upp hlaup síðustu daga hér heima og snertum á Zegama veislunni miklu.
#123 Búinn að krakka hlaupin!
EscuchadoAllt það helsta á dagskrá úr Bose stúdíóinu að vanda. Uppgjör á öllu því helsta úr hlaupum hérlendis og erlendis.
#122 Bolirnir mættir!
EscuchadoVið strákarnir mættum í Bose stúdíóið til að gera upp Puffin run og Trabuco trail. Við heyrðum í Elísu og fengum prerace skýrslu frá La Palma og fórum yfir það sem framundan er í hlaupasenunni um heim allann!
#121 Puffin run upphitun!
EscuchadoUppgjör síðustu hlaupa, Víðavangshlaup ÍR, Vecct Mílan, Vormaraþonið og hið ótrúlega London maraþon. Upphitun fyrir Puffin run og góð ráð til fellow hlaupara inn í sumarið!
#120 Allt sem þú þarft að vita um beinmeiðsli!
EscuchadoMagnús Birkir Hilmarsson sjúkraþjálfari kíkti til okkar í Bose stúdíóið og ræddi við okkur um beinmeiðsli. Hvað eru álagsmeiðsli í beini? Hverjir eru áhættuþættirnir? Skiptir hlaupastíll máli? Forvarnir og svo margt margt fleira. Maggi er rosalega fróður á sínu sviði, algjör skyldu hlustun fyrir alla hlaupara landsins!
#119 Gott hugarform!
EscuchadoNú er komið að því að hleypa af og blasta vetrarforminu því Víðavangshlaup ÍR er í fyrramálið! Við fengum hlaupadrottninguna Andreu Kolbeins í Bose stúdíóið til að fara yfir fyrstu keppni sumarsins!
#118 Apríl þrennan!
EscuchadoÍ þættinum í dag ræddum við um komandi hlaup hér heima. Við fengum skýrslu frá Guðmundi í Vecct, fórum yfir orðabók hlauparans, ræddum beinar útsendingar í hlaupum á Íslandi og ræddum Evrópumet í götuhlaupi!
#117 Konur í íþróttum með Láru Hafliða!
EscuchadoHin sprenglærða Lára Hafliðadóttir kíkti á okkur í Bose stúdíóið í dag og ræddi við okkur um konur í íþróttum (aðallega hlaupum). Lára er með meistaragráðu í íþróttavísindum og þjálfun KSÍ-B þjálfaragráðu. Hún er í doktorsnámi í líkamlegri þjálfun knattspyrnukvenna. Lára sérhæfir sig í mælingum, álagsstýringu, styrktar- og þolþjálfun og hefur kennt á KSÍ þjálfaranámskeiðum sem leiðbeinandi með KSÍ A leiðbeinendagráðu. Hún starfar sem fitnessþjálfari meistaraflokks kvenna Víkings og U23 landsliðs kvenna, sinnir rannsóknum við Háskólann í Reykjavík og kennir íþróttavísindi við grunnskólann NÚ. Lára hefur margra ára reynslu í líkamlegri þjálfun og knattspyrnu, bæði sem þjálfari og leikmaður yngri landsliða Íslands.
#116 DNF aftur elskan mín?
EscuchadoChianti uppgjör, nýungin frá Nóa Siríus og frí æfing fyrir hlaupaóða hlustendur! ÆFINGIN er frá okkar allra besta fólki í Fjallahlaupaþjálfun! 15 mín upphitun 2-3 sett af 3x3 mín í 9% - 6% - 3% halla á bretti með 2 mín rólegu á milli setta Tekið á zone 3 ákefð og farið upp í zone 4, byrja frekar of hægt en of hratt. Halla æfingar eru erfiðar, byrja rólega og sá hraði getur verið orðinn erfiður í lokin. Byrjar í 9% halla í 3 mín, 6% halla í 3 mín og svo 3% halla í 3 mín. Eykur hraðann eftir því sem brettið hallar minna þannig að ákefðin sé alltaf sú sama. 15 mín niðurskokk
#115 Tilbúinn að slá Íslandsmet!
EscuchadoVið fengum glóðvolga skýrslu út partýbílnum í Flórens. Sá var ekki illa skipaður, Andrea, Elísa, Gréta og Raggi á rútunni ræddu við okkur um Chianti sem fram fer um helgina. Einnig heyrðum við í Hlyni Andréssyni sem ræddi við okkur um nýjasta Íslandsmetið sitt, puffin run og næstu áskorun sína sem er heilt maraþon í Hannover!
#114 Orðlaus á Azores!
EscuchadoHugleiðingar, hlaupauppgjör síðustu hlaupa, íslandsmet og endurkomur. Glóðvolg skýrsla frá Azores eyjum. Hvað viljið þið meira?
#113 Winter is where it starts!
EscuchadoVið Út að hlaupa bræður fórum yfir síðustu æfingar og það sem framundan er. Heyrðum í Arnari Péturs sem er að undirbúa sig fyrir 100 km hlaup í Slóveníu eftir mánuð og fórum yfir góð ráð fyrir þá sem vilja ná árangri!
#112 Spikfeitur Latsi - Return of the king!
EscuchadoKing Latsi mætti í Bose stúdíóið og lokaði næringarþríleiknum stóra með spikfeitum þætti um fitu!
#111 Kóngamove að vera með rennt frá!
EscuchadoVið ræddum landsliðsvalið fyrir EM í Kamnik, fórum yfir síðasta powerade, vorum með spikfeitann Strava lið og fórum yfir góð ráð hvað varðar næringu fyrir stóru keppnina þína!
#110 Strava, snilld eða kvíðavaldandi montsíða?
EscuchadoFengum sjóðandi hot takes úr hlaupaheiminum frá Árdísi Ilmi, fórum yfir síðustu hlaup og ræddum spennandi keppnir framtíðarinnar!
#109 Hjólahjónin mætt í hlaupaskóna!
EscuchadoÁgústa Edda Björnsdóttir og Eyjólfur Guðgeirsson mættu til okkar í Bose stúdíóið og ræddu það hvernig umbreyting úr hjólara yfir í hlaupara á sér stað, gáfu hlaupurum frábær ráð varðandi það að æfa á hjóli og rifjuðu upp stórskemmtilegar keppnissögur frá ferlinum!
#108 Hlaup, mikilvægasti hlutur í heimi sem skiptir engu máli!
EscuchadoVið fengum skýrslu frá Gurru Magg, ræddum Youtube rás Út að hlaupa og framhaldið þar, ræddum kórónusjúka Elísu á Tene og fórum yfir heilræði frá Zach Miller!
#107 Smart íslandsmet
EscuchadoMættir aftur í Bose stúdíóið eftir dvöl erlendis. Fórum yfir síðustu hlaup hér heima og erlendis. Ræddum ótrúlegt íslandsmet Baldvins í Valencia, fórum yfir góð ráð hvernig best er að æfa yfir vetrartímann og slóum á hina margfrægu léttu strengi!
#106 Hlaupaannállinn mikli 2025!
EscuchadoMarteinn fékk Guðfinnu og Bibbu til að gera upp hlaupaárið með sér. Þau fóru um víðan völl, ræddu meðal annars samfélagsmiðla, hlaupasumarið, spáðu fyrir tímabilinu 2026 og slógu á rosalega marga létta strengi, enda enga þunga strengi að finna í Bose stúdíóinu!
#105 Hlaupið yfir farinn veg!
EscuchadoVið Út að hlaupa bræður fórum yfir árið hjá okkur og rifjuðum upp góðar hlaupastundir erlendis og hérlendis á árinu sem er að líða!
#104 Það geta allir gert þetta!
EscuchadoHerra Bose (Sigurður Ólafsson) kíkti í Bose stúdíóið til okkar og spjallaði við okkur um hlaupaferilinn, lífsmótandi breytingar og ástríðuna fyrir hreyfingu. Við fórum einnig yfir Valencia maraþonið og slóum á létta strengi. Allt í þrjáðbeinni frá Bose stúdíóinu!
#103 Ratar þessi þáttur austur?
EscuchadoVið Út að hlaupa bræður fórum yfir æfingar síðustu daga, svöruðum spurningum úr sal varðandi maraþon, Laugarveginn og margt fleira. Hugleiðingarnar og hlaupauppgjörið var á sínum stað ásamt allskonar yappi um hlaup!
#102 Ertu ekki slæmur í hnjánum?
EscuchadoGlóðvolgur þáttur úr Bose stúdíóinu að þessu sinni. Hlaupauppgjörið á sínum stað, djúsí hugleiðingar, skóhornið, gjafaleikir og svo mætti lengi telja!
#101 Soðin í svefn!
EscuchadoÞað var kátt á hjalla í Bose stúdíóinu í kvöld. Við fórum yfir NY maraþonið, heyrðum frá hlauparaunum Gurru Magg, ræstum út hvern gjafaleikinn á fætur öðrum og fórum yfir mikilvæg atriði varðandi Laugaveginn!
#100 Tímamótaþáttur!
EscuchadoÍ þessum tímamótaþætti sem er lengri en hálfmaraþonið hans Almgren um daginn ræddum við hlaup í nánustu fortíð, fengum Víetnamskýrslu frá Marteini og opnuðum fyrir símann!
#99 Hef hlaupið nóg af hlaupum þar sem mér hefur liðið vel!
EscuchadoÆvar Hrafn Ingólfsson mætti í Bose stúdíóið og fór yfir hlaupaferilinn. Allt frá því að geta ekki hlaupið verkjalaus yfir í að háleit markmið í maraþonum. Ævar talar um það hvernig er að vera maki hlaupara, áhuga sinn á hlaupaskóm, fer yfir Chicago maraþonið og ræðir hvað hlaup eru farin að skipta hann miklu máli í daglegri rútínu.
#98 HM uppgjör!
EscuchadoGuðfinna okkar allra besta mætti í Bose stúdíóið og gerði upp HM í fjarveru Marteins sem er að taka út hlaupaleiðir í Víetnam!
#97 Upphitun fyrir HM!
EscuchadoÞessa dagana er allt morandi í Heimsmeistaramótum. Við tökum upphitun fyrir HM í fjallahlaupum, farið yfir keppendur, brautirnar og möguleika Íslands. Einnig fórum við yfir HM í frjálsum íþróttum og fengum góðan gest í Bose stúdíóið alla leið frá Svíþjóð! Hlaupauppgjörið var að sjálfsögðu á sínum stað ásamt strava liðnum!
#96 Það er ekkert grín að vera fit!
EscuchadoSigurður Örn Ragnarsson, betur þekktur sem Siggi Tri mætti í Bose stúdíóið í dag og ræddi við okkur um mælingar hjá Greenfit. Við Út að hlaupa bræður fórum báðir í álagspróf á dögunum og fengum Sigga til þess að fara með okkur yfir skýrslurnar í þráðbeinni ásamt því að fara vel út fyrir efnið.
#95 Mánuðurinn til að toppa!
EscuchadoHot takes varðandi Ironman, hlaupauppgjör síðustu keppna, Örstutt yfirferð á UTMB og svo margt fleira fyrir eyrun ykkar á dag!
#94 Stærsta skemmtiskokk í heimi!
EscuchadoReykjavíkurmaraþonið fékk stóran sess í þessum þætti, enda margt að ræða eftir helgina. Við fengum skýrslu frá paradís utanvegahlaupanna, Chamonix frá Guðfinnu, Evu og Tobba ásamt því að við gerðum upp síðustu helgi. Ekki láta þennan fram hjá þér fara!
#93 Gat ekki sofið vegna verkja!
EscuchadoMarteinn er mættur aftur í Bose stúdíóið. 500 km hlaup, Reykjavíkurmaraþon, hitamálin varðandi ITRA stig, 6 maraþon á 6 dögum. Hvað meira er hægt að biðja um á þessum fína föstudegi?
#92 Maður á að fagna vel!
EscuchadoFannar Guðmundsson mætti í Bose stúdíóið í dag í fjarveru Marteins og ræddi um Reykjavíkurmaraþonið, erfiðleika sem mótuðu hann fyrir lífstíð, ryfjaði upp margar góðar hlaupasögur ásamt því að gera upp síðustu hlaup og fara yfir allskonar heit málefni í hlaupasamfélaginu. Fannar er einn fyndnasti maður hlaupasamfélagsins og þótt víðar væri leitað þannig að góða skemmtun!
#91 Þú verður að gera þetta að sigursögu!
EscuchadoGuðfinna okkar allra besta mætti til okkar Út að hlaupa bræðra og fór yfir síðustu hlaup, ræddi meiðslin sín og uppbygginguna fyrir HM ásamt svo ótrúlega margt annað!